Keramíkhúðun
Keramíkhúðun eða Ceramic Coat er það nýjasta í viðhaldi bílalakks í dag. Keramík húðin veitir óviðjafnanlega vörn gegn óhreinindum og er virkilega endingargóð. Keramík húðin sem við notum er Cquartz UK 3.0 og er harðasta keramík húð sem fæst á markaðnum í dag, efnið er unnið úr kísildíoxíð (SIO2)(70% af innihaldi Cquartz), þetta er fyrsta varan á markaðnum sem inniheldur svona mikið magn af hreinu SIO2.
Kísildíoxíð (SIO2) situr í fjórða sæti yfir hörðustu steinefni sem finnast í heiminum, skapar það mjög tæra og fallega húð yfir lakkið, hrindir frá sér vatni og gefur góða endingu. Ekki er þörf á að bóna bílinn ef búið er að bera á hann Cquartz UK en við mælum með því bera á bílinn CARPRO Reload sealant vörn á 3 – 4 mánaða fresti til þess að viðhalda Keramíkhúðinni og fá betri endingu.
Cquartz UK er harðara en hefðbundin glæra á bíl og eykur því þol bílsins gegn rispum og hrindir hann betur frá sér óhreinindum td. tjöru og salti. Vegna eðlis keramík efnisins þá er nauðsynlegt að lakkið sé í sínu besta ástandi. Það þýðir að nema bíllinn sé nýr eða mjög nýlegur, þá þarf að öllum líkindum að massa hann áður.
Meðferð:
- Þykktarmæling á lakki
- Lakkið hreinsað og undirbúið fyrir mössun
- Bíllinn leiraður til að losa föst óhreinindi (Ef þarf)
- Lakkið massað með vélum
- Lakkið hreinsað með hreinsiefnum
- Cquartz UK 3.0 borið á
Ráðlagt er að hafa bílinn þurran í 24klst fyrir hámarks endingu og þess vegna geymum við bílinn inni hjá okkur yfir nóttina til þess að leyfa keramíkhúðinni að binda sig betur við lakkið. Ekki skal þvo bílinn með sápu fyrstu 7 daga eftir að Cquartz er sett á bílinn.
Hefbundin mössun (2 til 3 dagar)
Vönduð mössun á lakki þar sem gamalt lakk fær nýtt líf og bílnum gefið yngra útlit á ný. Við leytumst eftir 60% – 70% niðurstöðum í þessari mössun fyrir eldri bíla en ef lakkið er nýlegt og vel með farið næst jafnvel 80-90% niðurstöður. Við fjarlægjum flestar þvottarispur í burtu og hækkum gljástigið á lakkinu verulega. Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 2 til 3 daga.
Full mössun (full lakkleiðrétting) – 3 til 4 dagar
Þessi pakki er fyrir þá kröfuhörðu! Lakkið verður með meiri gljáa en við hefbundna mössun. Allt lakkið verður nánast eins og nýtt þar sem við köfum djúpt ofan í lakkið með því markmið að ná allt að 95% niðurstöðum. Við fjarlægjum flestar allar þvottarispur og gamla kvilla í burtu. Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 3 til 4 daga.
Cquartz Dlux
Hægt er að bæta við Keramíkhúðun á felgur og allt plast með Cquartz Dlux sem er háþróaðasta plast og felgu keramík húð sem er fáanleg á markaðnum í dag. Unnið úr hágæða lífrænum kísil. Ólíkt öðrum vörum fyrir plast að þá endurheimtir Dlux upprunalegt útlit og verndar plastið í tvö ár eða lengur með því að nota einstaka nanosamsetningu. Gerir það Dlux kleift að binda sig betur við plastið sem eykur endingartíma. Þar að auki er Dlux með stóraukið þol gegn miklum hita sem gerir það fullkomið fyrir felgur og bremsubúnað.
DLUX Felgucoat miðavið nýjar felgur: 30.000 kr
SUMARPAKKAR!
Við bjóðum upp á sérstaka sumarpakka í keramikhúðun fyrir þá bíla sem koma í Apríl og Mai. Innifalið í pökkunum er allt sem þú þarft til þess að keyra inn í sumarið á glansandi bíl sem auðveldara verður að halda eins og nýjum. Keramíkhúðin veitir óviðjafnanlega vörn gegn óhreinindum og er virkilega endingargóð!
- Alþrif að innan og utan / Lakkhreinsun
- Hefðbundin mössun og Keramikhúðun (Cquartz UK 3.0)
- Flyby Forte Rúðuvörn á gler (Allt að 2 ára ending)
- DLUX Keramíkhúð á felgur og allt plast að utan
- Þvottleiðbeiningar fyrir viðhaldsþrif og eftirfylgni
- Meðferðin tekur 2 daga (Bílinn geymdur inni yfir nótt)
- Bíll kemur á staðinn til okkar
ATH: Svart eða mjög dökklitað lakk er að ræða þarf að fá sértilboð. (Dökklitað lakk er meiri vinna og því umsamið hverju sinni)
SUMARPAKKAR – KERAMIKHÚÐUN | |
---|---|
SUMARPAKKI – Fólksbíll | 159.990 kr |
SUMARPAKKI – Lítill Jeppi | 199.990 kr |
SUMARPAKKI – Stærri Jeppi / 7 Manna | 219.990 kr |
Yfirstærð | TILBOÐ |