fbpx

Bílafilmur

Keramíkhúðun eða Ceramic Coat er það nýjasta í viðhaldi bílalakks í dag. Keramík húðin veitir óviðjafnanlega vörn gegn óhreinindum og er virkilega endingargóð. Keramík húðin sem við notum er Cquartz UK 3.0 og er harðasta keramík húð sem fæst á markaðnum í dag, efnið er unnið úr kísildíoxíð (SIO2)(70% af innihaldi Cquartz), þetta er fyrsta varan á markaðnum sem inniheldur svona mikið magn af hreinu SIO2.

Kísildíoxíð (SIO2) situr í fjórða sæti yfir hörðustu steinefni sem finnast í heiminum, skapar það mjög tæra og fallega húð yfir lakkið, hrindir frá sér vatni og gefur góða endingu. Ekki er þörf á að bóna bílinn ef búið er að bera á hann Cquartz UK en við mælum með því bera á bílinn CARPRO Reload sealant vörn á 3 – 4 mánaða fresti til þess að viðhalda Keramíkhúðinni og fá betri endingu.

Cquartz UK er harðara en hefðbundin glæra á bíl og eykur því þol bílsins gegn rispum og hrindir hann betur frá sér óhreinindum td. tjöru og salti. Vegna eðlis keramík efnisins þá er nauðsynlegt að lakkið sé í sínu besta ástandi. Það þýðir að nema bíllinn sé nýr eða mjög nýlegur, þá þarf að öllum líkindum að massa hann áður.

Meðferð: 

  • Þykktarmæling á lakki
  • Lakkið hreinsað og undirbúið fyrir mössun
  • Bíllinn leiraður til að losa föst óhreinindi (Ef þarf)
  • Lakkið massað með vélum
  • Lakkið hreinsað með hreinsiefnum
  • Cquartz UK 3.0 borið á

Ráðlagt er að hafa bílinn þurran í 24klst fyrir hámarks endingu og þess vegna geymum við bílinn inni hjá okkur yfir nóttina. Ekki skal þvo bílinn með sápu fyrstu 7 daga eftir að Cquartz er sett á bílinn.

 

Létt mössun og Keramikhúðun (Fyrir nýja bíla): 

Þessi meðferð er fyrir nýja bíla sem koma í keramíkhúðun, við förum yfir lakkið og fjarlægjum fínar rispur og nuddför í lakkinu. Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 1 dag en við látum bílinn standa inni hjá okkur yfir nóttina til þess að leyfa keramíkhúðinni / coatinu að binda sig betur við lakkið.

 

Hefbundin mössun og Keramikhúðun: 

Vönduð mössun á lakki þar sem gamalt lakk fær nýtt líf og bílnum  gefið yngra útlit á ný. Við leytumst eftir 60% – 70% niðurstöðum í þessari mössun fyrir eldri bíla en ef lakkið er nýlegt og vel með farið næst jafnvel 80-90% niðurstöður. Við fjarlægjum flestar þvottarispur í burtu og hækkum gljástigið á lakkinu verulega. Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 2 til 3 daga en við látum bílinn standa inni hjá okkur yfir nóttina til þess að leyfa keramíkhúðinni / coatinu að binda sig betur við lakkið.

 

Full mössun og Keramikhúðun: (full lakkleiðrétting)

Þessi pakki er fyrir þá  kröfuhörðu! Lakkið verður með meiri gljáa en við hefbundna mössun. Allt lakkið verður nánast eins og nýtt þar sem við köfum djúpt ofan í lakkið með því markmið að ná allt að 95% niðurstöðum. Við fjarlægjum flestar allar þvottarispur og gamla kvilla í burtu.  Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 3 til 4 daga en við látum bílinn standa inni hjá okkur yfir nóttina til þess að leyfa keramíkhúðinni / coatinu að binda sig betur við lakkið.

 

Cquartz Dlux 

Hægt er að bæta við Keramíkhúðun á felgur og allt plast með Cquartz Dlux sem er háþróaðasta plast og felgu keramík húð sem er fáanleg á markaðnum í dag. Unnið úr hágæða lífrænum kísil. Ólíkt öðrum vörum fyrir plast að þá endurheimtir Dlux upprunalegt útlit og verndar plastið í tvö ár eða lengur með því að nota einstaka nanosamsetningu. Gerir það Dlux kleift að binda sig betur við plastið sem eykur endingartíma. Þar að auki er Dlux með stóraukið þol gegn miklum hita sem gerir það fullkomið fyrir felgur og bremsubúnað.

 

DLUX Felgucoat miðavið nýjar felgur: 25.000 kr

Verðskrá

Innifalið aukalega í öllum verðum er alþrif, við sækjum og skilum bílnum. ATH: Svart eða mjög dökklitað lakk er að ræða þarf að fá sértilboð. (Dökklitað lakk er meiri vinna og því umsamið hverju sinni)

Létt mössun og Keramikhúðun (Fyrir nýja bíla): 
Minni fólksbíll 59.990 kr
Fólksbíll 79.990 kr
Jepplingur 89.990 kr
Jeppi 99.990 kr
Yfirstærð frá 119.990 kr
Hefbundin mössun og Keramikhúðun: 
Minni fólksbíll 99.990 kr
Fólksbíll 119.990 kr
Jepplingur 139.990 kr
Jeppi 159.990 kr
Yfirstærð frá 189.990 kr
Full mössun og Keramikhúðun: (full lakkleiðrétting)
Minni fólksbíll frá 119.990 kr
Fólksbíll frá 149.990 kr
Jepplingur frá 169.990 kr
Jeppi frá 199.990 kr
Yfirstærð frá 219.990 kr
Fara upp